News

Orkan er grunnstoð í nútímasamfélagi

Viðtal við Árna Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, birtist í Orkublaði Morgunblaðsins fyrir helgi þar sem hann fjallar um mikilvægi orku fyrir íslenskt samfélag, orkuöryggi og framtíðaruppbyggingu innviða.

Árni leggur áherslu á að orka sé bæði verðmæt og takmörkuð auðlind sem þurfi að nýta af ábyrgð.

„Ísland er ótrúlega ríkt af hreinni orku og hún er langt frá því að vera sjálfgefin,“ segir hann og bætir við að mikilvægt sé að vera á undan vaxandi orkuþörf samfélagsins.

Jarðhitinn, sem ON nýtir í Henglinum, er ekki bara lykilhluti af raforkuframleiðslu fyrirtækisins heldur einnig forsenda þess að hægt sé að hita upp stóran hluta höfuðborgarsvæðisins. „Á hverju ári framleiðum við í virkjunum okkar um 60% af heita vatninu sem fer til höfuðborgarbúa. Ef við höldum ekki áfram að bora og viðhöldum þannig vinnslu þá liggur það beint við að hitaveitan verður óöruggari og það eykur álag á lághitasvæðin sem Veitur nýta. Við viljum forðast slíkt ástand.“Í viðtalinu fjallar hann jafnframt um umfangsmiklar fjárfestingar í orkuinnviðum á næstu árum og ný tækifæri í nýsköpun og djúpnýtingu jarðhita,“ segir Árni Hrannar.

Að lokum undirstrikar hann að orka sé grunnstoð nútímasamfélags og forsenda lífsgæða og framfara á Íslandi.

Viðtalið má lesa í heild sinni hér.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!