Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Jun 10, 2025

Orka náttúrunnar tók þátt í vinnustofu um einföldun og skilvirkni í orkumálum

Starfsfólk ON tók í síðustu viku þátt í vinnustofu Umhverfis‑, orku‑ og loftslagsráðuneytisins. Á fundinum var lögð áhersla á að kanna leiðir til að einfalda og bæta skilvirkni í stjórnsýslu orkumála, með þátttöku sérfræðinga orkufyrirtækja og ráðuneytisins og annarra hagmunaaðila. Hátt í 80 fulltrúar fyrirtækja tóku þátt í umræðum um stöðu orkumála, helstu tækifæri og forgangsröðun út frá áherslum nýrrar ríkisstjórnar.

Meðal umræðuefna voru þær áskoranir sem fylgja núverandi ferlum, möguleikar nýrra vinnubragða og sameiginleg markmið um að stjórnsýsla orkumála verði skýrari, skilvirkari og einfaldari. Starfsfólk ON tók þátt í umræðunum og í því að freista þess að bæta það umhverfi sem er verið að móta og þróa í samráði og samstarfi þessara aðila.

Ráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, sagði að ríkisstjórnin væri staðráðin í að ryðja burt hindrunum, óþarfa reglubyrði og skriffinnsku og að það kallaði á gott samtal við framkvæmdaraðila og fyrirtæki sem þekki flöskuhálsana af eigin raun.

Fram kom að fjöldi ábendinga hafi borist frá þátttakendum vinnustofunnar um það sem betur má fara í regluverki og stjórnsýslu orkumála. Ráðuneytið mun vinna áfram með tillögurnar við gerð lagafrumvarpa sem fyrirhugað er að leggja fram á næsta löggjafarþingi.

Við fögnum þessari samvinnu milli ráðuneytisins og ON og annarra hagsmunaaðila, hún markar mikilvægan áfanga í að móta framtíðarstefnu orkumála á Íslandi. 

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!