News
•
May 28, 2025
Orka náttúrunnar hæst meðal raforkusala í Sjálfbærniásnum 2025

Orka náttúrunnar tók í dag á móti viðurkenningunni Sjálfbærniásinn 2025. Orka náttúrunnar mældist marktækt hæst meðal raforkusala en fimmtán fyrirtæki í mismunandi atvinnugreinum hlutu viðurkenningu.
Sjálfbærniásinn er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum og gerir samanburð á stöðu og þróun á mörkuðum. Prósent, Langbrók og Stjórnvísi standa að Sjálfbærniásnum.
Tinna Jóhannsdóttir forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni hjá ON tók á móti viðurkenningu Sjálfbærniássins en þetta er annað árið í röð sem Orka náttúrunnar hlýtur þessi verðlaun. Þau eru rós í hnappagat Orku náttúrunnar því sjálfbærnimál eru öllu starfsfólki fyrirtækisins sérstaklega hugleikin og kemur það fram í öllum störfum og ákvörðunum.
Orka náttúrunnar er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins, rekur þrjár virkjanir þar sem bæði heitt vatn og rafmagn er framleitt. ON framleiðir þó ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.
Orka náttúrunnar hefur sett sér metnaðarfull markmið um að verða kolefnishlutlaus á næstu árum og vinnum ötullega að þeim markmiðum á hverjum degi. Við rekum einu vetnisframleiðslustöð landsins en við vinnum ekki eingöngu að því að draga úr eigin kolefnisspori heldur höfum við líka verið í fararbroddi í uppbyggingu innviða og hvatningu til almennings og atvinnulífs til að draga úr kolefnislosun með vistvænum samgöngum og þar spilar ört stækkandi hleðslunet ON stóra rullu.
Orka náttúrunnar er, til viðbótar við það sem nú þegar hefur komið fram, samfélagslega mikilvægt bæði eigendum sínum, sem og samfélaginu öllu. Því erum við einstaklega stolt af þessari viðurkenningu og þetta er frábær viðurkenning á framúrskarandi starfi okkar rúmlega 100 starfsmanna.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!