News
•
Dec 7, 2020
ON opnar afkastameiri hraðhleðslustöð við Varmahlíð

Orka náttúrunnar hefur uppfært hraðhleðslustöð sína í Varmahlíð í nýjustu kynslóð hraðhleðslustöðva. Nýja stöðin mun geta boðið allt að 150 kW hleðslu og getur þjónað tveimur bílum í einu sem deila þá aflinu að hámarki 75kW á hvort tengi, en það fer eftir hleðslugetu bílsins.
Eldri stöðin gat hlaðið 50 kW að hámarki og þá aðeins einn bíl í einu.
„Stöðin í Varmahlíð er þriðja stöðin sem við setjum upp í ár. Þessar nýju stöðvar eru í raun algjör bylting fyrir rafbílaeigendur því nú tekur enga stund að hlaða,“ segir Hafrún Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hleðslunets ON og segir að hraðhleðslustöðin í Varmahlíð muni bjóða uppá tvö CSS tengi og eitt Chademo. Fyrst um sinn verður aflið í Varmahlíð þó takmarkað við 138 kW þar sem leggja þarf aflmeiri heimtaug að stöðinni en vonast er til að það leysist sem fyrst.
Á sjötta tug hraðhleðslustöðva ON hringinn í kringum landið:
„Við höfum þegar pantað tíu 150 kW hraðhleðslustöðvar sem við stefnum á að setja upp í ár og næsta ári en Covid 19 setti stórt strik í reikninginn og seinkaði afhendingum verulega,“ segir Hafrún.
Árið 2014 hóf ON uppbyggingu innviða fyrir rafbíla þegar fyrsta hraðhleðslan var opnuð við Sævarhöfða í Reykjavík. Þessi uppbygging er liður í þeirri stefnu fyrirtækisins að vera í fararbroddi í orkuskiptum í samgöngum á Íslandi.
ON rekur stærsta hraðhleðslunet landsins og eru stöðvarnar vel á sjötta tug talsins. Áhersla er lögð á að þétta og bæta hraðhleðslunetið til að þjóna rafbílaeigendum sem allra best.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!