News

Mar 19, 2026

ON hlýtur styrki úr Loftslags- og orkusjóði til nýsköpunar í jarðhita

Orka náttúrunnar hefur hlotið styrki úr Loftslags- og orkusjóði til verkefna sem styðja við aukna nýsköpun, bætta nýtingu og verðmætasköpun. Styrkirnir eru liður í umfangsmikilli úthlutun sjóðsins þar sem alls var veitt 600 milljónum króna til verkefna á sviði jarðvarmanýtingar.

Verkefni Orku náttúrunnar sem hlutu styrk eru „Innviðir fyrir rannsóknir og nýsköpun til fjölnýtingar jarðhitavökva" sem fær 25 milljónir, „Fjölnýting jarðhita og tækifæri til verðmætasköpunar úr jarðhitavökva“, sem fær 7,3 milljónir króna, og hins vegar „Bætt nýtni varmaskipta“, sem fær 6 milljónir króna.

Markmið verkefnanna er annars vegar að byggja upp innviði og skoða hvernig nýta megi jarðhitavökva betur til fjölbreyttrar verðmætasköpunar, til dæmis með því að þróa lausnir sem hámarka nýtingu auðlindarinnar og skapa ný tækifæri í orkuskiptum og hringrásarhagkerfi. Hins vegar að bæta nýtni í varmaskiptum, sem getur aukið orkunýtni og dregið úr sóun.

„Þessir styrkir eru mikilvægir til að styðja við þá vegferð sem við erum á og hjálpa okkur meðal annars við uppbyggingu Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar, þar sem lögð er áhersla á að fullnýta afurðir Hellisheiðarvirkjunar á ábyrgan og umhverfisvænan hátt og skapa verðmæti,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Úthlutunin úr Loftslags- og orkusjóði er liður í áherslum stjórnvalda á aukna tækniþróun og nýsköpun í jarðhita en verkefnin sem hlutu styrki að þessu sinni eru fjölbreytt og ná allt frá djúpborun til þróunar á búnaði og betri nýtingu varma.

Stærsta styrkinn hlaut Orkuveitan, móðurfélag ON,  til áframhaldandi þróunar á djúpborunarverkefninu IDDP á Nesjavöllum. Verkefnið er samstarfsverkefni Orkuveitunnar, Landsvirkjunar, HS Orku og stjórnvalda. Markmiðið er að bora dýpra ofan í jörðina og hagnýta jarðhita við hærra hitastig en áður hefur reynst mögulegt. Takist að virkja raforku með þessum hætti yrði unnt að margfalda framleiðslugetu hverrar borholu á komandi árum.

„Það er afar ánægjulegt að sjá stjórnvöld styðja með markvissum hætti við nýsköpun og tækniþróun í jarðhita, það skiptir sköpum fyrir áframhaldandi framfarir í nýtingu endurnýjanlegra auðlinda og styrkir stöðu Íslands á alþjóðavettvangi,“ segir Árni Hrannar.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!