Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Oct 13, 2022

ON hlýtur Jafnvægisvogina þriðja árið í röð

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í gær stafrænu ráðstefnuna Jafnrétti er ákvörðun, sem streymt var í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV. Þar kynnti Eliza Reid forsetafrú viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar, en það eru þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í efsta lagi stjórnunar (framkvæmdastjórn).

76 fyrirtæki hlutu Jafnvægisvogina í ár en í þeim hópi var Orka náttúrunnar þriðja árið í röð.

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið í ár. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim þátttakendum sem hafa náð markmiðunum um 23 á milli ára.

„Við erum afar stolt af því að vera í þessum flotta hópi þriðja árið í röð og það er líka ánægjulegt að sjá fjölgun í hópnum milli ára. Það er mikilvægt að hafa í huga að jafnrétti er ákvörðun og ég er mjög stolt yfir því að vinna hjá fyrirtæki sem leggur áherslu á þessi mál og veit að þetta skiptir máli. Hjá okkur í Orku náttúrunnar myndum við vilja sjá fleiri konur í tæknistörfum en fjölgunin þar hefur ekki verið eins og við hefðum viljað, þar er svigrúm til bætingar,“ segir Guðrún Einarsdóttir forstöðumaður markaðsmála og þjónustu hjá ON.

Á myndinni hér að ofan má sjá Guðrúnu ásamt þeim Ernu Sigurðardóttur mannauðsráðgjafa hjá OR og Sólrúnu Kristjánsdóttur framkvæmdastýru Veitna sem einnig hlutu Jafnvægisvogina í ár.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!