News
•
Nov 23, 2021
ON hafði betur og fær að opna Hverfahleðslurnar

Orka náttúrunnar mun síðar í vikunni opna á ný 156 Hverfahleðslur sem staðsettar eru víða um borg eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur felldi úr gildi úrskurð kærunefndar útboðsmála fyrir stundu.
Í lok júní úrskurðaði kærunefnd útboðsmála að útboð Reykjavíkurborgar á svokölluðum Hverfahleðslum væri ógilt þar sem ekki var boðið út á evrópska efnahagssvæðinu. Í kjölfarið var Orku náttúrunnar, sem vann útboðið á sínum tíma, gert að slökkva á hleðslunum.
Eftir að hafa rýnt í úrskurð kærunefndar taldi ON ljóst að forsendur nefndarinnar fyrir niðurstöðunni væru rangar. Því var ákveðið að fara með málið fyrir héraðsdóm til þess að fá úrskurðinum hnekkt. Flýtimeðferð fékkst á dómsmálinu og í dag féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á sjónarmið ON.
Mikilvæg þjónusta við rafbílaeigendur
„Þetta er fyrst og fremst mikið gleðiefni fyrir þá fjölmörgu rafbílaeigendur sem treysta á þessa þjónustu. Það var alveg ljóst í okkar huga að forsendurnar fyrir niðurstöðu kærunefndar væru rangar og því ákváðum við að láta reyna á þetta fyrir dómi,“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra ON.
„Orka náttúrunnar hefur verið í fararbroddi þegar kemur að stuðningi við orkuskipti í samgöngum og við ætlum að halda því áfram. Hverfahleðslurnar eru ásamt Hraðhleðslum okkar og Heimahleðslum gríðarlega mikilvægur hlekkur þegar kemur að orkuskiptunum sem eru á fleygiferð. Við höfum alltaf lagt áherslu á að þjónusta alla okkar viðskiptavini með sem bestum hætti og Hverfahleðslurnar gegna lykilhlutverki hjá þeim sem ekki geta hlaðið heima hjá sér. Við munum alltaf setja okkar fólk í fyrsta sæti og eru viðbrögð ON í þessu máli svo sannarlega í takt við það.“
Hverfahleðslurnar sem hafa verið ótengdar síðan í lok júní verða tengdar á ný strax í vikunni. Til þess að þessi endurnýjuðu kynni rafbílaeigenda af Hverfahleðslum ON gangi sem best fyrir sig hefur fyrirtækið ákveðið að frá og með föstudeginum 26.nóvember verði frítt að hlaða í öllum Hverfahleðslum ON út mánuðinn.
Til upprifjunar er gott að minna fólk á að taka með sér snúru, ON-lykilinn og svo er í lagi að skilja bílinn eftir í Hverfahleðslum yfir nótt.
Eigendur brunabíla, bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti, eru vinsamlegast beðnir um að leggja bílum sínum annars staðar en í hleðslustæði ON.
Finndu næstu Hverfahleðslu her
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!