News
•
Sep 25, 2019
Nýsköpun í Jarðhitagarði Orku náttúrunnar

Algaennovation Iceland hefur opnað smáþörungaverksmiðju í Jarðhitagarðinum við Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar. Þetta er fyrsta fyrirtækið sem hefur starfsemi í Jarðhitagarði ON í Ölfusi. Fyrirtækið nýtir rafmagn, kalt- og heitt vatn beint frá ON Hellisheiðarvirkjun. Markmiðið með Jarðhitagarðinum er einmitt að breyta fjölbreyttum auðlindastraumum á jarðhitasvæðinu í verðmæti til framtíðar.
Algaennovation er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki sem þróað hefur aðferð til að breyta orku í fæðu. Verkefnið er í raun það fyrsta sinnar tegundar í heiminum þar sem þessi umbreyting á sér stað með skilvirkari hætti en áður hefur þekkst. Þá er stefnt að því að starfsemin verði kolefnisneikvæð. Það byggist á því að meiri koltvísýringur er notaður til að næra þörungana í ræktuninni en framleiðslan í heild losar. Þá er tæknin hér á landi klæðskerasniðin utan um jarðhitaauðlindirnar sem eru til staðar á Íslandi.
Jarðhitagarður ON var settur á laggirnar með það að leiðarljósi að byggja upp samfélag fyrirtækja sem leggja áherslu á umhverfið, nýsköpun og tækniþróun. Jarðhitaauðlindin og nýting hennar í Hellisheiðarvirkjun gefa af sér marga strauma, ekki bara rafmagn heldur líka kalt og heitt ferskvatn, steinefnaríkt vatn og gastegundir. Þessir straumar eru ekki fullnýttir í dag og gefa mikla möguleika á framtíðarverðmætum.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!