News

Ný verkstæðis- og lagerbygging rís á Hellisheiði


Orka náttúrunnar hefur hafið undirbúning að umfangsmikilli uppbyggingu á Hellisheiði þar sem rísa mun ný verkstæðis- og lagerbygging sem mun styrkja starfsemi fyrirtækisins til framtíðar. 

Um er að ræða um 2.000 fermetra stálgrindarhús á steyptum sökkli, ásamt nýju malbikuðu vinnusvæði og bílastæðum. Fyrsta skóflustungan var tekin 18. maí af Kristínu Birnu deildarstjóra viðhalds og verkstæðis hjá ON og samkvæmt áætlunum verður starfsemi komin að fullu í nýja húsnæðið haustið 2027. 

Verkefnið er nú komið á fullt skrið en útboðum fyrir jarðvinnu, undirstöður og reisingu hússins er lokið. Jarðvinnuverktakinn D. Ing mun annast undirbúning svæðisins, en Eykt sér um bæði steyptar undirstöður og byggingu stálgrindarhússins. Samhliða framkvæmdum er lokahönnun stálvirkis og tæknikerfa í fullum gangi og stefnt er að því að reisa fyrsta stálbitann í lok september. 

Að sögn Kristínar Birnu, er uppbygging nýs verkstæðis og bættrar starfsmannaaðstöðu mikilvægur hluti verkefnisins. „Með nýju húsnæði getum við skapað öruggara og skilvirkara vinnuumhverfi, auk þess sem aðstaða starfsfólks batnar til muna. Nýja verkstæðið mun jafnframt stuðla að betra flæði í gegnum starfsemina, sem eykur hagkvæmni, einfaldar verkferla og styður við betri þjónustu og afköst,“ segir hún. 

Samhliða þessu verður lagerstarfsemi á svæðinu sameinuð í eitt húsnæði. Í dag er lagerinn dreifður á um níu mismunandi staði, sem gerir utanumhald og aðgengi að efni bæði tímafrekt og óskilvirkt. Með nýrri, miðlægri lausn skapast betra skipulag og yfirsýn yfir birgðir. 

Að sögn Kríu Súsönnu Dietersdóttur, deildarstjóra lagers og birgðamála hjá ON, er helsti ávinningurinn fólginn í aukinni skilvirkni í daglegu starfi. „Með því að sameina lagerinn verður auðveldara að finna efni, bæta yfirsýn og draga úr tíma sem fer í leit og flutninga á milli staða,“ segir hún. Hún bætir við að breytingin muni einnig leiða til betri nýtingar birgða og minni hættu á tvíteknum innkaupum. 

Í nýja lagernum verður geymdur fjölbreyttur búnaður sem styður við rekstur virkjunarinnar, þar á meðal varahlutir, rekstrarvörur, verkfæri og öryggisbúnaður. Betra aðgengi að þessum búnaði mun styðja við hraðari viðbrögð, viðhald og aukið rekstraröryggi. 

Framkvæmdir á Hellisheiði fela í sér sérstakar áskoranir. Jarðvegsskipta þarf um 35.000 rúmmetrum af efni undir sökkul, en niður á fast berg eru allt að 11 metrar. Þá þarf einnig að taka mið af krefjandi veðurskilyrðum á svæðinu, þar sem meðal annars hefur aukin tíðni eldingaveðra áhrif á framkvæmdina. 

Verkefnið er í höndum öflugs teymis kvenna úr herbúðum ON, þar sem Guðrún West karlsdóttir er verkefnastjóri, Birna Björnsdóttir forstöðumaður orkuframleiðslu er eigandi verkefnisins, auk þess sem deildarstjórarnir Kría og Kristín koma að því. 

Ný verkstæðis- og lagerbygging markar mikilvægt skref fram á við fyrir Orku náttúrunnar og mun bæta aðstöðu, efla rekstraröryggi og styðja við áframhaldandi þróun starfseminnar á Hellisheiði. Það verður spennandi að fylgjast með húsinu rísa á næstu mánuðum. 


Kristín Birna græjaði fyrstu skóflustunguna sjálf


Guðrún West og Kría Súsanna við skóflustunguna


Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!