News

Mikilvægum áföngum náð í uppbyggingu Jarðhitagarðs

Undanfarna mánuði hafa ýmsir mikilvægir áfangar náðst í uppbyggingu og þróun Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar. Mótuð hefur verið skýr framtíðarsýn fyrir Jarðhitagarðinn til ársins 2035, samþykkt hefur verið uppbygging nýrrar nýsköpunarmiðstöðvar og verkefni á vegum Orku náttúrunnar hafa hlotið myndarlega styrki til að efla rannsóknir og verðmætasköpun, svo eitthvað sé nefnt.

„Jarðhitagarðurinn er orðinn mikilvægur hluti af framtíðarsýn Orku náttúrunnar. Þar nýtum við orku og auðlindir á fjölbreyttari hátt, getum laðað að ný fyrirtæki og þróað lausnir sem skapa bæði samfélagsleg og fjárhagsleg verðmæti. Áfangarnir sem við höfum náð undanfarið eru mikilvæg staðfesting á því að þessi vegferð er farin að skila árangri,“ segir Helga Kristín Jóhannsdóttir, deildarstjóri Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar.

Skýr framtíðarsýn til ársins 2035

Umfangsmikilli stefnumótunarvinnu fyrir Jarðhitagarð er nú lokið. Þar var mótuð metnaðarfull framtíðarsýn þar sem markmiðið er að árið 2035 verði Jarðhitagarðurinn leiðandi alþjóðlegur iðngarður í fjölnýtingu orku og auðlinda og ein af helstu tekjustoðum Orku náttúrunnar.

Samkvæmt framtíðarsýninni mun Jarðhitagarðurinn hýsa fjölbreytt samfélag fyrirtækja og verkefna, skapa verðmæti, störf og langtímaávinning, ná til allra starfssvæða ON og hafa Glóð sem hjarta samstarfs og nýsköpunar. Þá er markmiðið að Jarðhitagarðurinn verði stolt Orku náttúrunnar og eftirsóttur áfangastaður fyrir fyrirtæki, rannsakendur og frumkvöðla.

Glóð verður hjarta nýsköpunarinnar

Annar stór áfangi náðist þegar samþykkt var að ráðast í uppbyggingu Glóðar, nýrrar miðstöðvar nýsköpunar í Jarðhitagarðinum.

Glóð verður vettvangur þar sem frumkvöðlar, sprotafyrirtæki, rannsakendur og fyrirtæki geta unnið saman að þróun nýrra lausna og byggt upp verðmæti út frá þeirri einstöku aðstöðu og auðlindum sem Jarðhitagarðurinn býður upp á.

Styrkir efla rannsóknir og þróun

Einnig má nefna að ON hlaut nýverið tvo styrki úr Loftslags- og orkusjóði sem styðja við áframhaldandi þróun Jarðhitagarðsins og rannsóknir á aukinni nýtingu jarðhita.

Verkefnið Innviðir fyrir rannsóknir og nýsköpun til fjölnýtingar jarðhitavökva hlaut 25 milljóna króna styrk sem styður við uppbyggingu innviða að Glóð. Verkefnið Fjölnýting jarðhita og tækifæri til verðmætasköpunar úr jarðhitavökva hlaut 7,3 milljónir króna þar sem skoðaðar verða leiðir til að hægt sé að nýta skiljuvatn á lægri hitastigum.

Styrkirnir styrkja rannsóknar- og þróunarstarf sem miðar að því að hámarka nýtingu auðlinda og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar.

Mikil tækifæri fram undan

Jarðhitagarður Orku náttúrunnar byggir á þeirri hugsun að nýta orku og auðlindir á sem hagkvæmastan og sjálfbærastan hátt. Með því skapast tækifæri fyrir fjölbreytt fyrirtæki til að byggja upp starfsemi sem nýtir innviði, orku og hliðarstrauma sem þegar eru til staðar.

Fyrir Orku náttúrunnar felur þessi þróun í sér tækifæri til verulegrar verðmætasköpunar og fjölbreyttari tekjugrunns sem erfitt væri að skapa með hefðbundinni starfsemi einni saman. Um leið styrkir Jarðhitagarðurinn stöðu ON sem leiðandi fyrirtækis í sjálfbærri nýtingu auðlinda, nýsköpun og þróun lausna sem móta sjálfbæra framtíð.

Áföngunum var fagnað á dögunum þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar.


Starfsfólki var boðið til veislu í tilefni áfanganna.


Ingunn Gunnarsdóttir leiðtogi nýsköpunar hélt stutta tölu.


Helga Kristín Jóhannsdóttir, deildarstjóri Jarðhitagarðs, Sæmundur Hafsteinsson sérfræðingur nýsköpunar- og þróunarverkefna og Ingunn Gunnarsdóttir leiðtogi nýsköpunar.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!