News
•
Jun 10, 2025
Jarðvarmahlaup ON – náttúruupplifun í hjarta Hengilsins

Orka náttúrunnar býður til spennandi viðburðar í sumar þegar Jarðvarmahlaup ON fer fram fimmtudagskvöldið 10. júlí kl. 19:30. Hlaupið hefst og endar við Hellisheiðarvirkjun en leiðin liggur um stórbrotið og lifandi landslag Hengilssvæðisins þar sem jarðhitinn setur sterkan svip á umhverfið.
Jarðvarmahlaupið er um 13 kílómetrar að lengd og með flögutímatöku, þannig að allir þátttakendur fá skráðan persónulegan tíma. Leiðin hefst á malbiki, liggur í gegnum Sleggjubeinsskarð, meðfram Skarðsmýrarfjalli, yfir grösuga stíga, jeppaslóða og læki, áður en hlauparar koma að drykkjarstöð við skálann Hreysi og taka síðasta spölinn niður að virkjuninni þar sem markið bíður.
Að hlaupi loknu verður boðið upp á hressingu og notalega samveru í anda ON – þar sem útivist, sjálfbærni og orkan í náttúrunni mætast.
Þátttaka í hlaupinu er ókeypis og opin öllum en hámarksfjöldi þátttakenda er 500 manns. Forskráning fer fram á netskráning.is en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum svo lengi sem pláss leyfir.
Hengilssvæðið er með fallegustu útivistarperlum landsins, með yfir 110 km af merktum gönguleiðum og fjölbreyttu landslagi. Þar rekur ON jarðvarmavirkjanir sínar á Nesjavöllum og Hellisheiði og því er svæðið kjörinn vettvangur fyrir hlaup sem byggir á gildum sem við leggjum áherslu á; sjálfbærni, ábyrga auðlindanýtingu og vellíðan fólks.
Jarðvarmahlaup ON er upplifun fyrir öll sem vilja njóta þess að hreyfa sig í fallegu umhverfi og finna orkuna í náttúrunni.
Við hlökkum til að sjá ykkur 10. júlí!

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!