Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Feb 14, 2022

Jarðskjálfti á Hengilssvæðinu

Jarðskjálfti á Hengilssvæðinu

Jarðskjálfti að stærð 3.1 varð á Hengilssvæðinu í nótt.  Engin breyting var gerð á rekstri virkjana í aðdraganda skjálftans en hann átti sér stað á svæði þar sem vinnsla ON gæti hafa breytt spennusviði.

Orkuvinnsla á Hengilssvæðinu á sér um 30 ára sögu og mikið magn jarðhitavökva er tekið upp úr jarðhitakerfinu og dælt aftur niður eftir nýtingu þess í virkjunum. Vel þekkt er að jarðhitanýting getur haft áhrif á skjálftavirkni á vinnslusvæðum og nærri þeim og reynslan á Hengilssvæðinu sýnir að stundum fylgir aukin virkni breytingum í rekstri virkjana. Orka náttúrunnar rekur net jarðskjálftamæla á vinnslusvæðunum til að fylgjast náið með skjálftavirkni.

Skjálftarnir höfðu engin áhrif á rekstur virkjunarinnar en þar er unnið rafmagn fyrir alla landshluta og heitt vatn fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!