Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Jun 5, 2025

Hleðslunet Orku náttúrunnar þéttist enn frekar

Orka náttúrunnar hefur bætt við fjölda nýrra hleðslustöðva víðsvegar um landið á síðustu vikum og styrkir þar með ört vaxandi hleðslunet sitt. Með þessu aukast þægindi rafbílaeigenda og stuðlað er að áframhaldandi orkuskiptum á landsvísu.

Í Hveragerði opnaði  hraðhleðslustöð með tveimur CCS tengjum og einu CHAdeMO tengi við Leikfélag Hveragerðis og er það ný staðsetning. Þar voru einnig settar upp sex nýjar Zaptec hverfahleðslur. Þær henta vel fyrir íbúa og gesti sem vilja hlaða yfir lengri tíma.

Í Öræfum, á Fagurhólsmýri, hafa verið opnaðar tvær ON hraðhleðslur með tveimur CCS tengjum og einu CHAdeMO tengi. Þessar stöðvar njóta sín í einstaklega fallegu umhverfi, rétt við hliðina á Café Vatnajökli.

Á suðurleiðinni hefur ON einnig opnað hraðhleðslustöð við Skógafoss, einum fallegasta áfangastað Suðurlands. Þar er hægt að hlaða með tveimur CCS tengjum og einu CHAdeMO tengi á meðan tækifærið er nýtt til dæmis til að ganga um þetta stórbrotna svæði.

Á meðan þessi uppbygging utan höfuðborgarsvæðisins á sér stað heldur Orka náttúrunnar einnig áfram að þétta hverfahleðslunetið í borginni. Nýverið voru sett upp fjögur 22 kW tengi við Þorfinnsgötu í Reykjavík og önnur fjögur tengi við Hagamel í Vesturbænum. Þessar stöðvar henta sérstaklega vel fyrir íbúa og gesti sem vilja hlaða yfir lengri tíma í sínu nærumhverfi.

Það er einnig mjög ánægjulegt að Orka náttúrunnar hefur nú lokið við að taka yfir rekstur og þjónustu allra hleðslustöðva við Fosshótel um land allt. Alls eru þetta tólf staðsetningar sem nú heyra undir ON, og mun það auka enn frekar aðgengi ferðafólks að öruggri og traustri hleðslu.

Við hjá Orku náttúrunnar höldum ótrauð áfram að byggja upp og þétta hleðslunetið svo rafbílaeigendur geti ferðast um landið með öryggi, þægindi og sjálfbærni að leiðarljósi. Orkuskipti verða ekki að veruleika nema með góðu aðgengi að hleðslu – og við ætlum að tryggja að það verði raunin.

Til að finna næstu hleðslustöð nálægt þér er hægt að skoða hleðslukortið í ON appinu í símanum þínum eða hér í net appinu.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!