News

Mar 20, 2026

Heilsubóta- og fræðsluganga um Nesjavelli

Orka náttúrunnar fékk góða heimsókn í Nesjavallavirkjun á dögunum þegar við fengum tækifæri til að taka þátt í heilsuviku í Grímsnes- og Grafningshreppi en virkjunin er staðsett í hreppnum.

Markmiðið með heilsuviku var að bjóða íbúum upp á fjölbreytta viðburði sem tengjast heilsu, hreyfingu og fræðslu. Einn af viðburðum heilsuvikunnar var heilsubótarganga fyrir félag 60+ í hreppnum  og fannst okkur hjá ON kjörið að bjóða félaginu upp á göngu um Nesjavelli og fá um leið tækifæri til að fræða félagsfólk um starfsemi virkjunarinnar.

Það var umhverfis- og landgræðslustjóri ON, Magnea Magnúsdóttir, sem leiddi gönguna og hellti úr sínum djúpu viskubrunnum um leið. Hún sagði meðal annars frá umhverfismálum hjá ON og framleiðsluferli Nesjavallavirkjunar en í virkjuninni er stærsti hluti af því heita vatni sem íbúar höfuðborgarsvæðisins nota framleitt.

Hópurinn gat ekki verið heppnari með veður sem var sérstaklega stillt og fallegt og var þetta virkilega  skemmtileg leið til að efla tengsl við nærsamfélagið og kynna starfsemi Orku náttúrunnar á Nesjavöllum.

Takk fyrir komuna kæru nágrannar!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!