Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Dec 22, 2020

Förum varlega með rafmagnið

Förum varlega með rafmagnið

Það er margt í lífinu sem þarf rafmagn. Við kveikjum ljósin, opnum ísskápinn oft á dag, kveikjum á sjónvarpinu, setjum símann í hleðslu og núna líka bílinn.

Á þessum árstíma er hvað mest notkun á rafmagni og því vert að leiða hugann að nokkrum góðum ráðum til að hafa á bakvið eyrað:

  • Oft má ráða af ljósum og öðrum raftækjum hvort eitthvað er athugavert við rafkerfið

  • Ef skipta þarf oftar um perur í einu ljósastæði en öðru getur það m.a. bent til bilunar

  • Oft eru mörg raftæki í gangi inni í hverju herbergi og jafnvel notuð fjöltengi. Við þessar aðstæður er mjög mikilvægt að skipta um brotnar klær, ganga úr skugga um að allar rafmagnssnúrur séu heilar og að hvergi sjáist í bera víra

  • Notum aðeins fjöltengi með rofa og pössum að hlaða ekki of mörgum rafmagnstækjum á eitt fjöltengi

  • Raftæki geta ofhitnað ef þeim er staflað þétt ofan á hvert annað í lokuðu rými

  • Þegar slökkt er á sjónvarpi með fjarstýringu helst straumurinn áfram á því og brunahættan er stöðugt fyrir hendi – hvort sem tækin eru ný eða gömul

  • Látum logandi kerti aldrei standa ofan á raftæki

  • Hendum gömlum jólaljósum sem eru úr sér gengin

  • Notum ætíð ljósaperur af réttri gerð, stærð og styrkleika

  • Gætum þess að brennanleg efni séu ekki nálægt jólaljósum

  • Óvarinn rafbúnaður getur valdið raflosti

  • Vörum okkur á óvönduðum jólaljósum

  • Inniljós má aldrei nota utandyra

  • Förum eftir leiðbeiningum um uppsetningu og notkun á öllum raftækjum

  • Kíktu á reykskynjarann. Það er góður siður að skipta um rafhlöðu reglulega og sérstaklega fyrir jólin

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!