News
•
Fjölskyldudagur ON á Hellisheiði - Frítt inn

Fjölskyldudagur ON verður haldinn í Jarðhitasýningunni í Hellisheiðarvirkjun, sunnudaginn 10. maí frá klukkan 13:00 til 15:00.
Þennan dag er frítt inn á Jarðhitasýninguna og við bregðum á leik og kynnum undur jarðhitans fyrir ungum sem öldnum.
Vísinda-Villi og Stjörnu Sævar munu fræða og skemmta gestum og gangandi og Sirkus Íslands mun líka verða á svæðinu.
Boðið verður upp á blöðrur, andlitsmálningu og léttar veitingar.
Fjölskyldudagur ON er fullkomin leið til að upplifa skemmtilega hluti með fjölskyldunni á sunnudegi, kíkja inn í virkjunina og fræðast um það hvaðan heita vatnið og rafmagnið kemur og hvernig við vinnum það á sjálfbæran hátt.
Hlökkum til að sjá þig á sunnudaginn!














