News
•
Jan 12, 2018
Eldur í Hellisheiðarvirkjun – Uppfært kl. 14:50

Búið er að slökkva eld sem kviknaði í loftræsibúnaði Hellisheiðarvirkjunar laust fyrir hádegi. Reykkafarar eru að leita að glóðum sem kunna að leynast milli þilja. Tjón á framleiðslubúnaði virkjunarinnar virðist ekki verulegt en verið er kanna ástand húsnæðisins. Engan sakaði og virðast reglulegar æfingar starfsfólks með Brunavörnum Árnessýslu og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafa skilað sér í markvissum viðbrögðum.
Ekki er vitað um upptök eldsins en hann logaði í um tvo tíma í loftræsibúnaði og þaki miðhluta stöðvarhússins. Tveimur af sjö aflvélum virkjunarinnar sló út og slökkt var á varmastöðinni í öryggisskyni. Ekki er vitað á þessari stundu hvenær búnaðurinn verður ræstur að nýju.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!