News
•
Árni Hrannar nýr stjórnarformaður ORKIS

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, var nýverið kjörinn stjórnarformaður ORKIS sem er sameinað félag Orkuklasans (Iceland Renewable Energy Cluster), GEORG (Geothermal Research Cluster) og Íslenskrar Nýorku og er þverfaglegur samstarfsvettvangur aðila í orkutengdri starfsemi.
Kjörið fór fram á aðalfundi ORKIS í síðustu viku í höfuðstöðvum Orkuveitunnar og markaði fundurinn söguleg tímamót í íslenskum orku- og nýsköpunarmálum þegar þessir þrír vettvangar í orkugeiranum sameinuðust með formlegum hætti undir nýja nafninu ORKIS – Orka Íslands (ORKIS Energy Cluster Iceland).
Með þessu verður til einn öflugur vettvangur sem sameinar íslenska sérþekkingu, sterkt tengslanet atvinnulífsins og drifkraft nýsköpunar og hefur skýra sameiginlega sýn.
Margvísleg tækifæri framundan
Tilgangur ORKIS er að stuðla að framþróun tengdri öflun og nýtingu endurnýjanlegrar orku, svo sem jarðhita, orkuskiptum og fleiri þáttum með verkefnum meðal aðildarfélaga og þjónustu við félagsmenn til að auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun aðildarfélaga sinna.
Framtíðarsýn ORKIS er að Ísland verði leiðandi á alþjóðavísu í þróun og útflutningi sjálfbærra orkulausna sem byggja á þekkingu, nýsköpun og ábyrgri nýtingu auðlinda.
„Það er bæði heiður og ábyrgð að taka við sem stjórnarformaður ORKIS – Orku Íslands. Tækifærið fram undan felst í því að nýta enn betur þá þekkingu og auðlindir sem við búum yfir, skapa meiri verðmæti og þróa lausnir sem nýtast bæði hér heima og á alþjóðavettvangi. Með sterkari tengingu milli rannsókna, atvinnulífs og nýsköpunar getum við hraðað orkuskiptum og lagt grunn að nýjum tækifærum fyrir íslenskt samfélag,“ segir Árni Hrannar.
ORKIS leggur áherslu á eftirfarandi í starfsemi sinni:
Að taka þátt í verkefnum og verkefnaþróun og stjórna verkefnum, sækja fram í alþjóðlegu samstarfi og afla fjármagns úr samkeppnissjóðum.
Að byggja brýr milli atvinnulífs, háskóla og stjórnvalda.
Sjá um viðburði, ráðstefnur og faghópa sem styrkja tengslanet og skapa traust og samstöðu í greininni.
Að brúa bilið milli rannsókna og markaðar sem styður við nýsköpun og samkeppnishæfni
Ný stjórn með breiða aðkomu
Ný stjórn ORKIS er skipuð lykilaðilum úr orkutengdum geirum en í henni sitja auk Árna Hrannars þau Carine Chatenay hjá Verkís Verkfræðistofu, Deirdre Clark hjá ÍSOR, Kristín Steinunnardóttir hjá COWI, Kristján Guðmundsson hjá Landsvirkjun, María S. Guðjónsdóttir hjá Háskólanum í Reykjavík og Pétur Heide Pétursson hjá Arion banka. Varastjórn skipa Kristín Soffía Jónsdóttir, hjá Rarik, Steinþór Gíslason hjá EFLA Consulting Engineers og Yngvi Guðmundsson hjá HS Orku.














