Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Feb 11, 2026

Áhersla á orkuöryggi og áfallaþol orku- og veituinnviða

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, tók í síðustu viku þátt í ferð stjórnar Samorku til Brussel þar sem meðal annars var farið í heimsókn í höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins (NATO), Evrópuþingið og íslenska sendiráðið. Tilgangur ferðarinnar var að auka þekkingu á stefnum stofnananna í orkumálum og aðgerðum þeirra í að efla áfallaþol og orkuöryggi.

Stjórnin kynnti sér starfsemi Evrópuþingsins og átti þar fund með Barry Andrews, Evrópuþingmanni sem hefur m.a. setið í orkunefnd þingsins. Í heimsókn hópsins í höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins var fræðst um stefnu og aðgerðir bandalagsins í eflingu áfallaþols innviða. Þar tók fastanefnd Íslands vel á móti hópnum og átti stjórnin m.a. fund með Jörundi Valtýssyni sendiherra og fastafulltrúa Íslands hjá NATO og fleirum úr nefndinni.

Í sendiráði Íslands í Brussel var farið yfir nokkur af brýnustu hagsmunamálunum hvað varðar orkumál með sérfræðingum og embættismönnum íslenskra stjórnvalda, s.s. tilskipanir ESB um orku- og fráveitumál, væntanlega aðgerðaáætlun um eflingu jarðhita og stefnu um viðnámsþrótt vatns.

„Ferðin veitti okkur í stjórn Samorku mikilvæga innsýn í þróun orkumála í Evrópu og var mjög lærdómsrík. Slík samskipti og samstarf við nágrannaríki okkar er nauðsynlegt fyrir íslensk orku- og veitufyrirtæki á tímum hraðra breytinga og aukinnar áherslu á orkuöryggi,“ sagði Árni Hrannar.

Í stjórn Samorku auk Árna Hrannars sitja Sólrún Kristjánsdóttir formaður og framkvæmdastýra Veitna, Aðalsteinn Þórhallsson framkvæmdastjóri HEF, Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármála og árangurs hjá Landsneti, Magnús Kristjánsson framkvæmdastjóri Orkusölunnar, Páll Erland framkvæmdastjóri HS-veitna og Ríkarður Ríkarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun. 

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!