News

Apr 17, 2026

Það er bjart yfir Bæjarhálsi

Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri Orku náttúrunnar, flutti í síðustu viku fyrirlestur á 20 ára afmælisráðstefnu Netorku þar sem hann fjallaði um nýsköpunarverkefni ON, Birtu á Bæjarhálsi og fyrstu niðurstöður þess. Fyrirlesturinn bar yfirskriftina „Það er bjart yfir Bæjarhálsi!“ og varpaði ljósi á hvernig samþætting sólarorku, rafhlöðulausna og hraðhleðslu rafbíla getur skapað ný tækifæri í þróun raforkukerfisins.

Þrátt fyrir að íslenska raforkukerfið byggi nær alfarið á endurnýjanlegum orkugjöfum eru staðbundnar takmarkanir og álagstoppar sífellt stærri áskoranir. Reynslan af Birtu á Bæjarhálsi bendir til þess að dreifðar, blandaðar orkulausnir geti verið lykilþáttur í að takast á við þær áskoranir og styðja við áframhaldandi orkuskipti.

Birta á Bæjarhálsi er hluti af vinnu Orku náttúrunnar við að þróa hefðbundnar hleðslustöðvar þannig að framleiðsla, geymsla og notkun orku geti farið fram á samþættan hátt. Markmiðið er meðal annars að draga úr álagstoppum í raforkukerfinu, bæta nýtingu orku á staðnum og auka sveigjanleika í dreifikerfinu.

Í erindi sínu á ráðstefnunni kynnti Guðjón fyrstu tölur úr verkefninu sem benda til þess að samspil sólarorkuframleiðslu, rafhlöðu og hleðsluþarfar virki betur en búist var við, jafnvel við íslenskar aðstæður þar sem árstíðasveiflur eru miklar. Niðurstöðurnar styðja við þá sýn að slík blönduð orkukerfi geti gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu framtíðarhleðsluinnviða, sérstaklega í ljósi hraðrar rafbílavæðingar og aukins álags á raforkukerfið.

Í fyrirlestrinum var jafnframt velt upp þeirri lykilspurningu, hvort sólarorkuframleiðsla henti á Íslandi. Tæknin er komin nógu langt til að nýtast við íslenskar aðstæður, framleiðslan stenst væntingar og möguleikar til frekari nýtingar eru miklir. Hins vegar felast áskoranir í uppbyggingu slíkra kerfa og þörf er á skýrara regluverki og leiðbeiningum og aukinni þekkingu og reynslu í geiranum. Einnig er nauðsynlegt að fara í endurskoðun á innmötunargjöldum.

Til framtíðar hyggst Orka náttúrunnar nýta lærdóminn úr verkefninu við þróun næstu kynslóðar hleðslustöðva, með aukinni orkugeymslu, snjallri orkustýringu og frekari samþættingu þjónustu. Markmiðið er að byggja hagkvæm orkukerfi sem mæta þörfum notenda og samfélags í ört breytilegu orkuumhverfi.

Guðjón Hugberg Björnsson tæknistjóri ON.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!