Frétt
·
Jun 12, 2019
Bilaður rafall í Hellisheiðarvirkjun
Bilaður rafall í Hellisheiðarvirkjun

Við reglubundið viðhald á einni af sjö aflvélum Hellisheiðarvirkjunar nú á dögunum kom í ljós bilun í rafal við vélina. Miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir tekur viðgerð um tvo mánuði.
Gufuaflsvirkjanirnar á Hengilssvæðinu – á Nesjavöllum og Hellisheiði – hafa verið reknar í tæpa tvo áratugi án þess að svona skemmda hafi orðið vart. Allar vélarnar – sjö á Hellisheiði og fjórar á Nesjavöllum – hljóta reglubundnar skoðanir og viðhald.
Í samstarfi við sérfræðinga og aðra hagaðila vinnur starfsfólk Orku náttúrunnar nú að því að meta umfang vandans, finna ástæður hans og gera við.
Hellisheiðarvirkjun er stærsta jarðhitavirkjun landsins. Í henni eru sex 45 megavatta aflvélar sem nýta háþrýsta jarðhita auk 33 megavatta lágþrýstivélar. Þá er unnið heitt vatn í virkjuninni fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu. Raforkan sem unnin er í vélasamstæðunni, sem nú er verið að gera við, svarar til um eins tíunda hluta af raforkuvinnslu ON. Áhrif á heitavatnsvinnslu í Hellisheiðarvirkjun eru engin.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!