News
•
Heimsókn í Jarðhitagarð


Stay updated with our newsletter
Heimsókn í Jarðhitagarðinn á Hellisheiði
Orka náttúrunnar, Climeworks og Vaxa Technologies bjóða þér í heimsókn í Jarðhitagarðinn á Hellisheiði þriðjudaginn 2. júní kl. 13:00.
Jarðhitagarður Orku náttúrunnar er grænn iðngarður á rúmlega 100 hektara svæði við Hellisheiðarvirkjun, stærstu jarðvarmavirkjun í Evrópu. Þar er aðgengi að endurnýjanlegri raforku og varmaorku, auk lands og vatnsauðlinda. Í iðngarðinum eru auðlindirnar nýttar með hringrásarhugsun að leiðarljósi.
Í garðinum hefur byggst upp öflugt samfélag einstakra, framsækinna fyrirtækja. Climeworks vinnur að kolefnisbindingu úr andrúmslofti og Vaxa Technologies framleiðir fæðubótarefni og náttúruleg litarefni fyrir matvæli.
Framtíðarsýnin er áframhaldandi uppbygging Jarðhitagarðsins með fjölgun fyrirtækja og aukinni nýtingu auðlinda í hringrás. Samhliða verður Glóð þróuð sem hjarta nýsköpunar, rannsókna og samstarfs á svæðinu.
Í heimsókninni færðu innsýn inn í starfsemi og framtíðarsýn svæðisins.
Dagskrá:
12:30 – Rúta frá Bæjarhálsi 1
13:00 – Móttaka í Jarðhitasýningu ON (gestir geta skoðað sýninguna)
13:30 – Kynning á Jarðhitagarði ON, Climeworks og Vaxa
14:30 – Fyrirtækjaheimsóknir til Climeworks og Vaxa
15:45 – Lok heimsóknar, rúta fer aftur að Bæjarhálsi
Við hlökkum til að taka á móti þér.










