Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Nov 16, 2020

Jarðskjálftar við Hellisheiðarvirkjun

Jarðskjálftar við Hellisheiðarvirkjun

Jarðskjálftar sem urðu á Hengilssvæðinu í gærkvöldi áttu upptök við Húsmúla þar sem jarðhitavatni sem nýtt er í Hellisheiðarvirkjun hefur síðasta áratuginn verið dælt niður í jörðina aftur. Orka náttúrunnar rekur jarðskjálftamælanet á vinnslusvæðinu til að fylgjast náið með skjálftavirkninni. Vísindafólk ON fylgist vel með þróun mála á svæðinu í kvöld og nótt og er í sambandi við jarðvárvakt Veðurstofunnar.

Skjálftarnir höfðu engin áhrif á rekstur virkjunarinnar en þar er unnið rafmagn og heitt vatn fyrir hitaveituna á Höfuðborgarsvæðinu.

Orkuvinnsla á Hengilssvæðinu á sér tæplega 30 ára sögu og mikið magn jarðhitavökva er tekið upp úr jarðhitakerfinu og dælt aftur niður eftir nýtingu þess í virkjunum. Ástæða þess að vatninu er dælt niður í jörðina aftur er að það eykur sjálfbærni jarðhitanýtingarinnar og dregur úr umhverfisáhrifum en það er einnig skilyrði í nýtingarleyfi Orkustofnunar. Þegar breytingar hafa verið gerðar á niðurdælingu hefur það valdið smáskjálftavirkni á svæðinu.

Engar slíkar breytingar voru í gangi þegar skjálftarnir urðu í kvöld. Engu að síður telur vísindafólk Orku náttúrunnar að skjálftarnir tengist þeim spennubreytingum sem langvarandi niðurdæling veldur.

Engar breytingar verða gerðar á niðurdælingunni að sinni að minnsta kosti, enda eru breytingar á tilhögun hennar taldar auka líkur á skjálftavirkni.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!