Hvernig tekur þú þátt?
Jólaleikurinn stendur yfir frá 1. desember til og með 31. desember.
Þegar þú hleður bílinn á hverfa- eða hraðhleðslustöð ON ferð þú sjálfkrafa í pottinn. Því oftar sem þú hleður, því meiri möguleika hefur þú á að vinna til verðlauna.
Glæsilegir vinningar í boði
Aðalvinningshafar í Jólaleiknum eru tveir og verða þeir dregnir út að leik loknum.
Einnig verða fjórir aukavinningshafar dregnir úr pottinum vikulega á meðan leiknum stendur.
Aðalvinningar:
Gjafabréf fyrir 2 í Sky Lagoon
Gjafabréf fyrir 2 í Hvammsvík
Aukavinningar:
Gjafabréf í Bónus
Gjafabréf fyrir tvo fullorðna á Undur íslenskrar náttúru í Perlunni
Gjafabréf á Krónikunni, veitingastaðnum í Gerðarsafni
Gjafabréf á Grillhúsinu í Borgarnesi
Hver vinnur?
Vinningshafar verða dregnir úr hópi allra sem hafa hlaðið á hverfa- eða hraðhleðslustöðvum ON á tímabilinu 1.–31. desember. ON hefur svo beint samband við vinningshafa á því netfangi eða símanúmeri sem skráð er á aðganginn sem notaður var til að greiða fyrir hleðsluna.
Hvað annað þarftu að vita?
Finndu næstu hleðslustöð í vefappinu hér
Náðu í ON appið og finndu næstu hleðslustöð hér
Almenna skilmála vegna leiksins er hægt að lesa hér
Persónuverndarskilmála má lesa hér



