Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Jun 11, 2025

Markmiðið er að tryggja áfram örugga orkuöflun

Orka náttúrunnar (ON) og Orkuveitan áforma að bora nýjar rannsóknar- og vinnsluholur í Hverahlíð og Meitlum, innan sveitarfélagsins Ölfuss. Á dögunum var haldið opið hús í Þorlákshöfn þar sem gestir gátu kynnt sér verkefnið og umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðra borana. Hægt er að kynna sér skýrsluna og setja fram athugasemdir og ábendingar á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/1005 til 23. júní 2025.

Meðal hlutverka sem Orkuveitan og Orka náttúrunnar gegna er að vera aflvaki sjálfbærrar framtíðar. Markmið með þessum borunum á nýjum rannsóknar- og vinnsluholum er að tryggja áfram örugga orkuöflun fyrir heimili og fyrirtæki landsins með framleiðslu á heitu vatni og rafmagni. Fyrirtækin leggja áherslu á að orkuvinnslan fari fram með hagsmuni almennings og umhverfisins að leiðarljósi. Því er lögð mikil áhersla á samráð og samvinnu við sveitarfélög, stjórnvöld og almenning.

Opna húsið gekk vel og fengu gestir svör við spurningum sínum frá sérfræðingum okkar. Þess má geta að upplýsingar um verkefnið hanga uppi fram að helgi í galleríinu Undir stiganum í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn. Á vef Orkuveitunnar má lesa nánar um verkefnið https://orkuveitan.is/umhverfi-og-sjalfbaerni/graen-orka/rannsoknar-og-vinnsluholur-i-hverahlid-og-meitlum/

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!