Virkjanirnar okkar
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna, auk þess að framleiða heitt vatn sem selt er til Veitna.
Við erum leiðandi í umhverfisvænum orkuskiptum á Íslandi og nýsköpun í nýtingu auðlindastrauma.
- Við höfum náð metnaðarfullum loftslagsmarkmiðum og stefnum á að gera enn betur og viljum nýta auðlindir af ábyrgð og nærgætni til að bæta lífsgæði í nútíð og framtíð, okkur öllum til heilla.
- Við erum leiðandi í landgræðslu og við allar framkvæmdir þá höldum við til haga gróðurþekjunni og nýtum hana til að endurheimta gróðurlendi. Við höfum þróað og nýtt óhefðbundnar aðferðir í landgræðslu, til að mynda þá notum við mosa blandaðan við súrmjólk til að endurheimta mosaþembur.
- Við erum frumkvöðlar í að þróa lausnir til að minnka losun jarðhitalofttegunda og minnka kolefnisfótspor okkar.
- Við höfum einnig þróað og byggt upp einstakt vélaverkstæði þar sem viðgerðir á búnaði virkjunarinnar eru gerðar með gæðum á heimsmælikvarða.
Orkan okkar
Jarðhitavirkjanir okkar á Nesjavöllum og Hellisheiði voru byggðar til að mæta auknum þörfum á heitu vatni í samfélaginu. Á virkjanasvæðum okkar eru um 1000-3300 metra djúpar borholur og frá þeim berst vatnsblönduð gufa sem leidd eftir safnæðum í skiljustöð þar sem vatnið er skilið frá gufunni. Vatnið fer í varmastöð og er notað til að hita upp grunnvatn til hitaveitu. Við framleiðum um 50 % af öllu heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu sem meðal annars er notað til húshitunar og í sundlaugar. Hugsaðu um okkur næst þegar þú ferð í sund eða sturtu.
Til þess að nýta auðlindir okkar sem best er gufan þar að auki leidd að gufuhverflum þar sem raforkuframleiðsla fer fram. Rafmagnið okkar er framleitt á sjálfbæran hátt og er kolefnisspor þess með því lægsta sem gerist í heiminum.
Í vatnsaflsvirkjuninni okkar í Andakílsá er vatnsafl nýtt til að framleiða rafmagn.
Þrjár virkjanir
Orka náttúrunnar á og rekur þrjár virkjanir sem okkur þykir mjög vænt um. Þær eru jarðhitavirkjanirnar á Hellisheiði og Nesjavöllum og vatnsaflsvirkjunin í Andakíl, Borgarfirði.
Hellisheiðarvirkjun
Hellisheiðarvirkjun er staðsett sunnan við Hengilinn og framleiðir heitt vatn og rafmagn. Virkjunin var gangsett árið 2006 og er uppsett afl 200 MW í varmaafli og 303 MW í rafmagni. Í lítrum talið er þetta um 950 lítrar á sekúndu. Allt umfram jarðhitavatnið rennur að jafnaði í niðurrennsliskerfi niður fyrir grunnvatnskerfi í jarðhitageyminn. Lofthreinsistöð er staðsett við virkjunina sem að nýtir Carbfix aðferðina til að hreinsa um 75% af brennisteinsvetni og um 30% af koltvísýringi sem að leyst eru upp í jarðhitavatni og veitt í niðurrennsliskerfi.
Nesjavallavirkjun
Nesjavallavirkjun sem staðsett er norðan við Hengilinn framleiðir heitt vatn og rafmagn. Hún getur framleitt allt að 300 MW í varmaorku sem eru um 1.640 l/sek af heitu vatni og allt að 120 MW af rafmagni. Hluti af afgangs jarðhitavatni frá virkjuninni fer í niðurrennslisholur og stöðugt er unnið að stækkun niðurrennslisveitu. Verið er að prófa djúpa niðurdælingu á jarðhitavatni til að undirbúa tilraunaniðurdælingu á koltvísýring og brennisteinsvetni.
Andakílsárvirkjun
Andakílsárvirkjun í Borgarfirði hóf rekstur árið 1947. Virkjunin leysti af hólmi vélknúnar rafstöðvar sem notaðar höfðu verið bæði á Akranesi og í Borgarnesi og nálægu dreifbýli og var því mikil umhverfisbót. Heildarframleiðslugeta virkjunarinnar er 8 MW. Í rekstri virkjunarinnar er tekið verulegt tillit til vatnshæðar í Skorradalsvatni og rennslis í Andakílsá í þeim tilgangi að hlúa sem best að Skorradalsvatni sem náttúrusvæðis og Andakílsá sem veiðiá.