Fáðu ráðgjöf
Sendu okkur línu ef þú hefur áhuga á að vita meira um Heimahleðslu í áskrift. Sölumenn okkar munu hafa samband og svara öllum þínum spurningum!
Heimahleðsla ON er hagstæð leið til að hlaða rafbílinn heima á þægilegan hátt.
Með Heimahleðslu ON færðu 22 kW hleðslustöð í áskrift og því óþarfi að fjárfesta í kostnaðarsömum búnaði. Heimahleðsla ON er hagstæð leið til að hlaða rafbílinn á þægilegan hátt, hvort sem þú býrð í sérbýli eða fjölbýli og þú greiðir það sama fyrir rafmagnið á bílinn og þú greiðir fyrir heimilisnotkun. Einfalt, ódýrt og þægilegt.
Ef húsfélagið þitt er með uppsett hleðslukerfi hjá ON geturðu einfaldlega pantað hleðslustöð og við mætum með hana og setjum hana upp.
Ætlar húsfélagið þitt að koma upp hleðslukerfi fyrir íbúa hússins? Pantaðu ráðgjöf fyrir húsfélagið þitt, við greinum þörfina og stillum upp tilboði án skuldbindingar.
Einbýli, raðhús og parhús. Heimahleðsla ON í áskrift er lausn sem hentar þínum þörfum. Við sjáum um reksturinn og allt viðhald á hleðslustöðinni.
Hleðslulausnir ON eru sérsniðnar að þínum rekstri. Við veitum ráðgjöf og stillum upp tilboði án skuldbindingar.
Sendu okkur línu ef þú hefur áhuga á að vita meira um Heimahleðslu í áskrift. Sölumenn okkar munu hafa samband og svara öllum þínum spurningum!
Orka náttúrunnar er traust fyrirtæki sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu hleðsluinnviða síðan 2014. ON þjónustar og rekur stórt kerfi hleðslustöðva og sérhæfir sig í hleðslulausnum fyrir alla þ. á m. sveitafélög, fyrirtæki, húsfélög og heimili. Þessi mikla þekking og reynsla í þjónustu við rafbílaeigendur hefur skilað sér í því að ON hefur mælst hæst í Íslensku ánægjuvoginni undanfarin fimm ár en þar er ánægja viðskiptavina raforkusala mæld.
ON hefur mælst hæst í Íslensku ánægjuvoginni undanfarin fimm ár. Það er alls ekki sjálfgefið og því er mikið virði í að vera með öflugt teymi til að þjónusta okkar viðskiptavini. Teymið er sett saman af öflugu fólki með það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu með öflugum hleðslulausnum þar sem allir geta hlaðið á auðveldan hátt.
Með Heimahleðslu í áskrift færðu aðgang að nútímalegri hleðslustöð þarft því ekki að fjárfesta í kostnaðarsömum búnaði.
Þú greiðir mánaðarlega áskrift og færð ON heimahleðslustöð heim til þín. Öll þjónusta og viðhald er innifalið í mánaðarlegu áskriftinni.
Heimahleðsla í áskrift er fyrir þau sem vilja hagkvæman kost til að hlaða rafbílinn sinn heima án þess að hafa áhyggjur af viðhaldi. Með heimahleðslu í áskrift hefurðu einnig aðgang að nútímalegri hleðslustöð. Ef núverandi tækni úreldist þá uppfærir ON búnaðinn.
Þú borgar lága mánaðarlega áskrift og færð ON hleðslustöð heim til þín. Öll þjónusta og viðhald er innifalið í mánaðarlegu áskriftinni. Þjónustuver ON er opið allan sólarhringinn og sérfræðingar okkar sjá til þess að þú getur leitað hjálpar ef vandamál upp koma. Ef Þjónustuver ON getur ekki leyst vandamálið í gegnum síma koma tæknimenn okkar á staðinn. Að auki greiðir þú fyrir þá raforku sem þú notar og kostar rafmagnið það sama og heima hjá þér. Greiðsluþjónusta er einnig innifalinn þannig að gjaldkeri húsfélags þarf ekki að skipta upp raforkukostnaði á milli íbúa.
Kynntu þér verðskrá fyrir Heimahleðslu í áskrift.
Með Heimahleðslu í áskrift þarft þú aldrei að hafa áhyggjur af hleðslu rafbílsins. Þjónustuver ON er opið allan sólarhringinn og sérfræðingar okkar sjá til þess að þú getur leitað hjálpar ef vandamál upp koma. Ef Þjónustuver ON getur ekki leyst vandamálið í gegnum síma koma tæknimenn okkar á staðinn.
Í stað þess að fjárfesta í kostnaðarsamri hleðslustöð borgar þú lága mánaðarlega áskrift og hefur aðgang að hleðslustöð heima hjá þér. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af bilunum eða úreldingu á dýrum tæknibúnaði. Að auki borgar þú sama verð fyrir rafmagnið í Heimahleðslu í áskrift og heima hjá þér.
Hleðslustöðvar eru dýr og flókinn búnaður og örar tækniframfarir gera það að verkum að sífellt koma öflugri og snjallari hleðslustöðvar. Með Heimahleðslu í áskrift ert þú alltaf með hleðslustöð sem er búin nýjustu tækni og uppfyllir ströngustu öryggiskröfur.
Rafmagnið kostar ekkert meira í Heimahleðslu í áskrift. Þú borgar sama verð fyrir kWs í og þú borgar heima hjá þér (að því gefnu að þú ert að kaupa heimilisrafmagnið af ON). Kynntu þér verðskrá fyrir Heimahleðslu í áskrift.
Þú þarft að hafa samband við ON og óska eftir Heimahleðslu í áskrift. Sérfræðingur ON mun taka við málinu og veita ráðgjöf í samráði við rafverktaka.
Rafverktaki þarf að leggja raflagnir að öllum bílastæðum í fjölbýli þar sem dokka fyrir hleðslustöð er sett upp. Þegar þú vilt fá Heimahleðslu í áskrift mætir tæknimaður ON á staðinn og setur hleðslustöð upp fyrir þig án alls auka kostnaðar. Sérfræðingar ON veita rafverktaka ráðgjöf varðandi hönnun grunnnets og framkvæma úttekt á því að lokinni uppsetningu. ON gerir kröfu um að rafverktaki skili tilkynningu inn til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Í sérbýli sér rafverktaki um allar tengingar og uppsetningu hleðslustöðvar í einni heimsókn.
Aðstaða til hleðslu rafbíla er misjöfn og er nauðsynlegt að skoða aðstæður á hverjum stað. Sérfræðingar ON geta veitt ráðgjöf og metið kostnað gróflega.
Já, þú getur sagt upp Heimahleðslu í áskrift hjá ON með mánaðarfyrirvara og það er enginn lágmarksbinditími.
Í ON-hleðsluappinu getur þú fylgst með þinni raforkunotkun.
Þú getur notað annað hvort ON-lykilinn eða hlaðið í gegnum ON-appið.
Að svo stöddu er þjónustan eingöngu í boði á Suð-vesturhorninu á svæði sem markast af Akranesi í norðri, Selfossi í austri og öllu Reykjanesinu. Unnið er að því að stækka þetta svæði.
Já, allir rafbílar geta notað Heimahleðslu í áskrift, hvort sem þeir eru búnir Type 1 eða Type 2 tengi.
Grunnnet er raflagnakerfi í fjölbýli eða fyrirtæki sem uppfyllir alla staðla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og er hannað þannig að öll geta hlaðið rafbílinn sinn á sama tíma. Grunnnet samanstendur af raforkumæli, öryggi og lekaliða í töflu, ásamt öllum raflögnum og dokku að hverju bílastæði.
Já, við hönnun grunnneta hafa sérfræðingar ON til hliðsjónar umhverfissjónarmið með lágmörkun á efnisnotkun án þess að hafa neikvæð áhrif á getu þess. Með því er hægt að setja grunnnet upp á hagstæðan máta.
ON ábyrgist með hönnun grunnnets að næg geta sé innan kerfisins svo öll geta hlaðið í einu og álagstýringin sér til þess að allir bílar fái nægilega hleðslu til daglegra nota.
Nei, því miður fylgir hleðslusnúra ekki með hleðslustöðinni að svo stöddu.
Já, það er hægt að læsa hleðslusnúruna við hleðslustöðina. Sérfræðingur ON sér um að gera það sé þess óskað.