Fréttir
5. júní 2020

Þrefalt hraðari hleðsla

ON hefur tekið í notkun nýjustu kynslóð af hraðhleðslustöðvum með 150 kW hleðslugetu. Stöðin er við höfuðstöðvar ON við Bæjarháls.

Nú geta rafbílaeigendur hlaðið þrisvar sinnum hraðar en áður með nýjum hraðhleðslustöðvum ON þar sem afl þeirra mun aukast þrefalt, úr 50 kW í 150kW,“ segir Hafrún Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hleðslunets ON. Á næstu dögum verður hraðhleðslustöð ON við Miklubraut uppfærð í 150 kW og í framhaldinu verður haldið áfram að uppfæra hraðhleðslur víða um land. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á næsta ári.

„Með nýju hraðhleðslustöðvunum verður hægt að hlaða tvo bíla í einu á sömu stöð. Þess ber að geta að ef tveir aðilar eru að hlaða á sama tíma í 150 kW hleðslunum þá lækkar aflið í hámark 75 kW per tengi,“ segir Hafrún en bendir jafnframt á að rafbíllinn sjálfur takmarkar alltaf hversu hratt hann getur hlaðið sig.

Á sjötta tug hraðhleðslustöðva ON hringinn í kringum í landið

Árið 2014 hóf Orka náttúrunnar uppbyggingu innviða fyrir rafbíla þegar fyrsta hraðhleðslan var opnuð við Sævarhöfða í Reykjavík. Þessi uppbygging er liður í þeirri stefnu fyrirtækisins að vera í fararbroddi þegar kemur að orkuskiptum í samgöngum á Íslandi.

ON rekur í dag stærsta hraðhleðslunet landsins og eru stöðvarnar nú vel á sjötta tug talsins. Áhersla hefur verið lögð á að þétta og bæta hraðhleðslunetið til að þjónusta rafbílaeigendur sem allra best.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.