Fréttir
19. janúar 2021

Rafbílaeigendur fá meira hjá ON

Orka náttúrunnar hefur gefið út nýja verðskrá sem tekur mið af breyttri hleðsluhegðun íslenskra rafbílaeigenda og aukinni afkastagetu hleðslustöðva. Til þessa hefur verðskráin verið óhagstæðari fyrir eldri bíla sem þurft hafa lengri tíma til að hlaða en meðal breytinga er að nú er ekkert mínútugjald tekið í hraðhleðslum ON og aðeins greitt fyrir kWs. Síðar á árinu  verður sett tafagjald á bíla sem eru enn tengdir við hraðhleðslustöð eftir að hleðslu er lokið. Áfram verður innheimt lágt tímagjald á 22kW hleðslum, eða 0,5 kr/mín.

20% afsláttur af hraðhleðslum og 10% af heimilisrafmagni

Þær breytingar á verðskránni sem tóku gildi 1. janúar 2021 eru að rafbílaeigendur með virkan ON-lykil fá 20% afslátt af hraðhleðslum og 10% afslátt af notkun heimilisrafmagns. Kröfurnar eru þá eingöngu þær að vera rafbílaheimili, þ.e. heimili í viðskiptum við ON ásamt því að vera með rafbíll og virkan ON-lykil. Ávinningurinn getur verið töluverður fyrir þau heimili sem nýta sér þessi sérkjör eða á milli 8-10 þúsund kr. á ári sé miðað við meðalnotkun.

 

Rafbílaheimili(50kWstöð kW/s Verð Samtals Afsláttur Afsláttur kr.
Meðalnotkun heimilis 4000 8,1 32.400 10% 3.230
Meðalnotkun rafbíls í heimahleðslu 2700 8,1 21.870 10% 2.187
Meðalnotkun rafbíls í hraðhleðslu 300 50 15.000 20% 3.000
Samtals 69.270 8.427
Rafbílaheimili (150kW stöð) kW/s Verð Samtals Afsláttur Afsláttur kr.
Meðalnotkun heimilis 4000 8,1 32.400 10% 3.240
Meðalnotkun rafbíls í heimahleðslu 2700 8,1 21.870 10% 2.187
Meðalnotkun rafbíls í hraðhleðslu 300 65 19.500 20% 3.900
Samtals 73.770 9.327

 

 

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.