HengillinnHengillinn

Hengillinn

Hengill er okkar athafnasvæði og þar rekum við jarðhitavirkjanirnar á Nesjavöllum og Hellisheiði. Hengilssvæðið er á meðal stærstu háhitasvæða á Íslandi og tengist þremur eldstöðvakerfum.

Gönguleiðir á Hengilssvæðinu

Gönguleið á Hengilssvæðinu

Gengið á Henglinum

Hengilssvæðið er háhitasvæði um 20 kílómetra suðaustur af Reykjavík. Á ári hverju stunda tugþúsundir Íslendinga og erlendir ferðamenn útivist á Hengilssvæðinu en þar eru gönguleiðir alls um 110 km að lengd. Utan athafnasvæða virkjana ON er svæðið opið almenningi. Hengilssvæðið er á virku gosbelti. Þar er að finna heita hveri, hraungíga, ár og vötn og gróðursæla bletti.

Hengilssvæðið er kjörið til útivistar allan ársins hring. Búið hefur verið í haginn fyrir útivistarfólk með neti merktra gönguleiða, uppsetningu upplýsingaskilta, gönguskála og útgáfu gönguleiðakorts. Orka náttúrunnar og áður Orkuveita Reykjavíkur hafa haft veg og vanda af þessu starfi síðan árið 1990, í samráði við sveitastjórnir á svæðinu.

Áhugaverðar gönguleiðir  –  Kort af gönguleiðum

Háhitasvæði á Íslandi