Fyrirtækjahleðsla í áskrift
- Áskriftargjald frá 4.400 kr.
- Rafbíll hlaðinn með ON-lyklinum / ON-appinu
- ON sér um rekstur og viðhald hleðslustöðvarinnar
- Álagsdreifing og fasajöfnun tryggir nægilegt afl
- Greiðsluþjónusta ON innifalin í mánaðargjaldinu
Við framleiðum og seljum rafmagn til allra landsmanna og erum leiðandi í metnaðarfullum og umhverfisvænum orkuskiptum á Íslandi.
Markmið okkar er að tryggja sjálfbæra nýtingu orkunnar fyrir viðskiptavini okkar, umhverfið, landið og auðlindirnar til framtíðar. Við búum yfir áralangri þekkingu og reynslu á rafmagnsmálum og leggjum metnað í að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Þegar fyrirtæki tengist Orku náttúrunnar er það í viðskiptum við leiðandi aðila á heimsvísu í nýtingu jarðhita og minnkun kolefnisspors í orkuvinnslu. Við virkjanir ON starfar margt fremsta vísindafólk landsins og þróunarverkefni ON í loftslagsmálum hafa vakið heimsathygli.
Jarðhitavirkjanir ON eru með eitt minnsta kolefnisspor í sínum flokki og þar hefur verið þróuð aðferð til að binda koltvísýring sem grjót í jarðlögum. Orka náttúrunnar stefnir að sjálfbærri og sporlausri vinnslu jarðhitans. Lítið spor verður stórt stökk fyrir núlifandi og komandi kynslóðir.