Fréttir
9. febrúar 2023

Hverfahleðslur í Reykjanesbæ

Orka náttúrunnar og Reykjanesbær eru að hefja uppbyggingu á Hverfahleðslum líkt og við höfum rekið með góðum árangri í Reykjavík og Garðabæ síðustu ár. Um er að ræða u.þ.b fimmtán staðsetningar með yfir fimmtíu tengjum en fjöldinn liggur ekki endanlega fyrir og gætu staðsetningar eitthvað breyst. Fyrstu Hverfahleðslurnar hafa nú þegar verið settar upp og eru þær við Vatnaveröld og við Ráðhúsið en strax í kjölfarið munum við setja upp hleðslustöðvar við Keili og Stapaskóla. Undirbúningur á uppsetningum á fleiri stöðum er í fullum gangi og þegar snjó tekur að leysa þá munu þær rísa hver á fætur annarri. Þess má geta að við settum upp Hverfahleðslur með fjórum tengjum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í desember og sjáum við á notkuninni að fólk er að nýta sér þær í miklum mæli. Fjölbrautaskóli Suðurnesja ætlar að bæta um betur og er stefnan að setja upp Hraðhleðslustöð þegar færi gefst en þá verður hægt að hlaða bílinn á mjög skömmum tíma. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir okkur enda höfum við lengi unnið að uppbyggingu hleðsluinnviða í Reykjanesbæ með það markmið okkar að þjónusta enn betur rafbílaeigendur á suðurnesjum. Hlökkum til að eiga í frekari samskiptum við ykkur. Áfram orkuskiptin!

Hverfahleðslur í Reykjanesbæ - Vatnaveröld

Hvað eru Hverfahleðslur?

Sækja appið!

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.