Fréttir
27. maí 2019

Endurreisn lífríkis í Andakílsá

Föstudaginn 24. maí var 30 þúsund laxaseiðum komið fyrir í tveimur sleppitjörnum við Andakílsá. Þetta er liður í endurreisn lífríkis árinnar í kjölfar aurburðar sem varð sumarið 2017 vegna viðhalds og ástandsmats á stíflumannvirkjum Andakílsárvirkjunar. Síðsumars 2017 var hluti þeirra laxa sem skiluðu sér aftur í ánna tekinn í klak og eru seiðin afurð af því klaki.

Seiðin verða í sleppitjörnunum í nokkrar vikur, þar til þau eru tilbúin að fara í ánna. Sumarið 2020 verður öðrum 30.000 seiðum sleppt til viðbótar í Andakílsá.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.