News
•
Nov 11, 2025
Ertu ON í umbreytingu? Klárum orkuskiptin á Íslandi!

Orka náttúrunnar heldur ráðstefnu í Kaldalóni, Hörpu þann 11. nóvember.
Um ráðstefnuna
Á undanförnum mánuðum hefur mikil umræða skapast um orkuskiptin – og hvers vegna við höfum ekki klárað þau. Með þessari ráðstefnu viljum við hjá Orku náttúrunnar skapa vettvang fyrir opna umræðu um næstu skref, áskoranir og tækifæri sem felast í orkuskiptunum.
Við ætlum að ræða hvað þarf að gerast til að hægt sé að nýta betur þá innviði sem þegar hefur verið fjárfest í og hvernig mismunandi aðilar geta tekið þátt í að hraða umbreytingunni.
Sérstök áhersla verður lögð á rafbílavæðingu ferðaþjónustunnar, áskoranirnar sem fylgja henni og hvaða hlutverk hver og einn hagaðili gegnir í þeirri þróun.
Dagskrá
08:30 – 09:00 Húsið opnar, kaffi og veitingar í boði
09:00 – 10:15 Erindi
10:15 – 11:00 Pallborðsumræður
11:00 – 11:30 Spjall, kaffi og léttar veitingar
Erindi
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra
Tinna Jóhannsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni ON
Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó
Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp
Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds
Pallborðsumræður
Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri ON

Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar
Viðburðurinn verður ekki í beinu streymi - hlökkum til að sjá ykkur í Hörpu.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!